top of page

MATARÆÐI

Mataræði spilar stóran hlut í heilsusamlegum lífsstíl en fólk á oft í óheilbrigðu sambandi við mat. Það einkennist af skömm eftir að hafa borðað eða neitun á að borða.
Módel fara oft á svakalega kúra til að líta sem best út en það má setja spurningamerki við það hvort þetta sé í rauninni heilsusamlegt. Mataræði Victoria’s Secret módela fyrir sýningar einhæfist af djúsum, vatni, grænmeti og höfrum. Annað vinsælt ráð til að grennast er að fara á safakúr en í raun er það kannski ekkert allt of hollt. Á safakúrnum drekkur þú einungis safa í 3-10 daga og átt þannig að ná að losa þig við aukakílóin. En þegar þú drekkur alla næringu þína geturu átt .það á hættu á skola burt öllum mikilvægum næringarefnum og vítamínum sem líkaminn þarf á að halda til að geta starfað eðlilega. Það getur verið afar hættulegt að fara á svona öfgafulla kúra þar sem þeir eru einungis skammtíma lausn og veita aðeins þyngdaratp í stuttan tíma. Það er mun hollara að gera lífstílsbreytingu og reyna eftir bestu getu að borða hreint og úr öllum fæðuflokkum.

bottom of page